Bara tala
Gefum íslensku séns

Bara tala × Gefum íslensku séns

Vertu með
í samstarfiBara tala ogGefum íslensku
séns!

Bara tala og Gefum íslensku séns hafa tekið höndum saman til að tengja stafrænt íslenskunám við mannleg samskipti og raunverulegar aðstæður.

Við leitum að almannakennurum Gefum íslensku séns sem vilja taka þátt í verkefninu og styðja fólk sem er að læra íslensku með Bara tala.

Verkefnin geta meðal annars falist í að aðstoða fólk við íslenskunám á vinnustöðum og taka þátt í íslenskuhittingum þar sem fólk æfir sig í að tala íslensku og myndar ný tengsl.

Hefur þú áhuga?

Skráðu þig hér að neðan og við höfum samband þegar verkefni hentar þér.

Upplýsingarnar eru notaðar til að hafa samband vegna verkefnisins.

Opna skráningarform í nýjum flipa

Spurningar? Hafðu samband við okkur.

Saman sköpum við fleiri tækifæri til að tala íslensku!